Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var í Spjallinu hjá Frosta Logasyni og viðraði þar þá hugmynd sína að hér verði tekin upp samfélagsþjónusta til árs fyrir unga fólkið. Innlent 2. maí 2024 10:26
Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Prófessor í stjórnmálafræði segir betra fyrir forsetaframbjóðendur að hafa allt uppi á borðum. Í litlu samfélagi séu margar furðusögur á sveimi og mikilvægt fyrir viðkomandi að fá tækifæri til að leiðrétta þær. Þá segir hún forseta í raun gefa upp frelsi sitt þegar hann er kjörinn, þar sem hann sé á sólarhringsvakt alla daga ársins. Innlent 2. maí 2024 09:14
Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Fjöldi fólks lét sjá sig þegar Jón Gnarr forsetaframbjóðandi opnaði dyrnar að kosningaskrifstofu sinni við Aðalstræti 11 í dag. Boðið var upp á kræsingar og skemmtiatriði í tilefni opnunarinnar. Lífið 1. maí 2024 23:13
„Það er hart sótt að okkar fólki“ Verkalýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Fjöldi landsmanna kom saman í kröfugöngu í miðbæ Reykjavíkur og var gengið niður að Ingólfstorgi þar sem fram fór fjölmennur útifundur. Innlent 1. maí 2024 21:01
Úrskurðurinn felldur úr gildi Landskjörstjórn braut á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar þegar þeir úrskurðuðu að meðmælalisti forsetaframbjóðandans Viktors Traustasonar væri ógildur. Úrskurðarnefnd kosningamála hefur því fellt úrskurðinn úr gildi. Innlent 1. maí 2024 17:20
Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Formaður Samtakanna '78 segir það áhyggjuefni þegar reynt er að nota kynhneigð forsetaframbjóðanda til að gera hann tortryggilegan. Baldur Þórhallsson var spurður í viðtali í vikunni hvort mynd af honum á stað sem sagður er vera kynlífsklúbbur geti skaðað ímynd forsetaembættisins. Innlent 1. maí 2024 12:08
Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Heimili Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur forsetaframbjóðanda er hlaðið listaverkum eftir hana sjálfa. Myndirnar sem prýða veggina eru þó ekki allar úr smiðju Ísdrottningarinnar; eitt tiltekið verk fékk hún að gjöf úr áhugaverðri átt. Lífið 1. maí 2024 10:00
„Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Samtökin 78 hvetja íslenskt samfélag í heild sinni til að halda sig í málefnalega umfjöllun í aðdraganda kosninga. Það gera þau í tilefni af umfjöllun um einkamálefni Baldurs Þórhallssonar. Innlent 1. maí 2024 09:46
Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi sér eftir því að hafa greitt atkvæði með því að sækja Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, til saka í Landsdómsmálinu svokallaða. Innlent 30. apríl 2024 22:21
Hver er Kári Hansen? Kári Vilmundarson Hansen er einn þeirra sem skilaði inn undirskriftum til landskjörstjórnar með það fyrir augum að bjóða sig fram til forseta Íslands. Hann segir í stuttu spjalli við Vísi að hann hefði einfaldlega gripið gæsina, tækifærið. Innlent 30. apríl 2024 16:47
Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, og Eiríkur Ingi Jóhannson sjómaður eru gestir Pallborðsins í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Innlent 30. apríl 2024 13:00
Að velja forseta Forsetakosningar eru ólíkar öllum öðrum kosningum. Þegar við kjósum okkur forseta er þjóðin að velja sér trúnaðarmanneskju, einstakling sem við treystum til að bregðast rétt við þegar viðbragða er þörf. Skoðun 30. apríl 2024 12:30
Synjunarvald gegn virkjunum Ég hef tekið það fram í skrifum mínum á fasbók, að dýrustu verðmæti þjóðarinnar fælust í þeim auðlindum náttúrunnar sem unnt væri að virkja til okuframleiðslu án þess að grípa þyrfti til kola eða olíu eins og nauðsynlegt er víðast hvar erlendis. Skoðun 30. apríl 2024 11:01
Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Sólborg Guðbrandsdóttir rithöfundur og meðlimur í kosningateymi Baldurs Þórhallssonar segir hann þurfa að svara spurningum sem aðrir forsetaframbjóðendur þurfi ekki að svara vegna kynhneigðar sinnar. Innlent 29. apríl 2024 21:46
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninganna getur hafist í síðasta lagi á fimmtudag. Landskjörstjórn úrskurðaði ellefu framboð til embættis forseta Íslands gildi í dag en framboð tveggja uppfylltu ekki skilyrði. Innlent 29. apríl 2024 20:04
„Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Viktor Traustason vill meina að meðmælalistar hans til þess að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands uppfylli öll skilyrði og furðar sig á því að Landskjörstjórn hafi komist að annari niðurstöðu. Innlent 29. apríl 2024 17:24
Hættur við að styðja Höllu Hrund Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður kom mörgum á óvart í morgun þegar hann lýsti yfir stuðningi við forsetaframboð Höllu Hrundar Logadóttur orkumálastjóra. Hann hefur nú dregið þann stuðning sinn til baka. Innlent 29. apríl 2024 16:45
Má spyrja homma að öllu? Þegar líða fer að kosningum fara Gróur þessa lands á stjá og velta hinum ýmsu málefnum fyrir sér. Fólk veltir því fyrir sér hvort Katrín Jakobsdóttir klæðist blúndu- eða boxernærbuxum, hvort Jóni Gnarr finnist betra að fara í sleik eða fá gill á bakið og hvort Ástþór Magnússon fíli BDSM eða kertaljós og jarðarber. Þessi klassísku kosningamál. Kjósendur vilja ólmir vita hvort Halla Hrund hafi skellt sér á næturklúbb með manninum sínum, hvort Arnar Þór hyggist kyssa konuna sína á Bessastöðum og hvort Steinunn Ólína hafi verið með annarri konu. Skoðun 29. apríl 2024 16:30
Baldurs og Felix-fáni falur Stuðningsmenn framboðs Baldurs Þórhallssonar og Felix Bergssonar hafa útbúið varning sem þeir selja til stuðnings framboðinu. Lífið 29. apríl 2024 14:02
Góð manneskja í djobbið Þá er orðið ljóst hverjir eru í framboði til forseta Íslands og spennandi kosningar fram undan. Ég deili ekki þeirri skoðun að forsetaembættið sé ekki til neins, en um það gildir eins og mörg hlutverk í okkar fámennissamfélagi, hvernig það gagnast fer mest eftir því hver tekur það að sér. Skoðun 29. apríl 2024 11:30
Viktor og Kári heltast úr lestinni Tvö framboð til embættis forseta Íslands voru úrskurðuð ógild á fundi Landskjörstjórnar í dag. Þeir Viktor Traustason og Kári Vilmundarson Hansen fá ekki pláss á kjörseðlinum þegar kosið verður til forseta þann 1. júní næstkomandi. Innlent 29. apríl 2024 11:17
Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Landskjörstjórn ætlar að úrskurða um gildi forsetaframboða á fundi í Þjóðminjasafni Íslands klukkan 11. Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum og fylgist með gangi mála í forsetavaktinni. Innlent 29. apríl 2024 10:29
Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Helga Þórisdóttir, forsetaframbjóðandi og forstjóri Persónuverndar, kaus gegn Icesave og telur mikilvægt að forseti Íslands sé hlutlaus og óháður. Betra sé að hann hafi ekki verið í stjórnmálastarfi. Hún segist munu beita málskotsrétti ef skýr vilji þjóðar er fyrir því. Innlent 29. apríl 2024 09:20
Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Halla Hrund Logadóttir mælist með 29 prósent fylgi í nýrri skoðanakönnun Prósents og Baldur Þórhallsson kemur þar á eftir með 25 prósent fylgi. Katrín Jakobsdóttir mælist aðeins með 18 prósent og Jón Gnarr með 16 prósent. Innlent 29. apríl 2024 06:34
Enga saltdreifara á Bessastaði takk Mér er mjög minnisstæð predikun gamals prests fyrir áratugum síðan, en hann lagði út af textanum "þér eruð salt jarðar", sem er bein tilvitnun í biblíuna. Klerkurinn brýndi fyrir okkur að fara vel með saltið og misnota það ekki, því ekkert væri verra en að hella salti í sár þeirra sem "óvígir lægju á vellinum" eins og hann orðaði það, og þá átti hann við þá sem orðið höfðu undir í lífsbaráttunni. Skoðun 28. apríl 2024 23:01
Hvernig forseta vilt þú? Leiðir okkar Höllu Tómasdóttur lágu snemma saman á Kársnesinu í Kópavogi þar sem við vorum saman í sunnudagaskóla, virkir þátttakendur í barnastúkunni Vinabandinu, spiluðum saman handbolta með Breiðabliki og vorum í kór hjá Tótu Björns. Skoðun 28. apríl 2024 17:01
Spurðu fólkið Gildir lýðræðið bara á fjögurra ára fresti? Eru kjósendur utan þjónustusvæðis þess á milli? Eftir fjármálahrunið 2008 leið mörgum eins og þeir væru leiksoppar ráðamanna, engu skipti hvað hinum „venjulega manni“ fyndist, hann væri ekki með á leikvellinum. Sjálfsmynd þjóðarinnar var brotin – eða hreinlega ekki til. Ekkert sameiningarafl. Enginn spegill að horfa í. Skoðun 28. apríl 2024 16:00
Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Arnar Þór Jónsson, forsetaframbjóðandi og lögmaður, bauð stuðningsmönnum sínum í framboðsgleði í Iðnó á föstudagskvöld. Fjöldi fólks sótti viðburðinn. Lífið 28. apríl 2024 15:32
Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Þau fjögur sem skorti meðmælendur á undirskriftalista til forseta Íslands segjast vera komin með viðunandi fjölda memælenda. Þrjú af fjórum vantaði undirskriftir í sunnlendingafjórðungi. Landskjörsstjórn gefur frest til fimm í dag að skila inn viðunandi fjölda. Innlent 28. apríl 2024 13:00
Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Forsetaframbjóðandann Arnar Þór Jónsson vantaði sex meðmæli til þess að ná lágmarksfjölda undirskrifta eftir yfirferð Landskjörstjórnar í gær. Hann segist hafa leyst málið strax. Innlent 28. apríl 2024 10:00